Púttmót fyrir helgina

Föstudagur 4. september 2009

Seinni partinn í dag tók ég þátt í starfsmannafélags-púttmóti á vinnustað mínum, Hrafnistu. Þó ég spili ekki golf finnst mér voða gaman að taka þátt í "pútti" en slíkir vellir eru við tvö Hrafnistuheimilanna og eru auðvitað ætlaðir heimilisfólkinu. Við starfsmennirnir fáum nú stundum að stelast líka til að prófa og höldum okkar eigin mót. Eitt slíkt var seinni partinn í dag og var það bara mjög gaman. Mótið fer fram eftir mjög nákvæmum reglum en þátttakendur taka keppnina misalvarlega eins og gerist og gengur. Um árangurinn minn skal sem minnst talað en eins og stóð í setningu hér áðan: þetta var mjög gamanSmile

IMG_5705[1]

Mynd dagsins er frá púttmótinu í dag og gefur vonandi tilfinningu fyrir jákvæðu upplifun dagins!


Í skólanum var gaman...

Fimmtudagur 3. september 2009

Í hádeginu í dag hitti ég nokkra félaga úr MBA-námi sem ég stundaði fyrir nokkrum árum í Háskólanum í Reykjavík. Við vorum 28 í bekknum en námið tók tvö ár, 2002-2004 (sjá nánar færslu 5. júní 2009). Bekkurinn hefur verið nokkkuð duglegur að hittast frá útskrift og reynum við að hittast í hádegi á tveggja mánaða fresti yfir vetrartímann. Það er alltaf gaman að sjá framan í fólkið og rifja upp gamlar sögur en einnig að heyra nýjar fréttir af félögunum.

IMG_5703[1]
 

Mynd dagsins er frá "hittingnum" í hádeginu í dag en við snæddum á veitingastaðnum "Kryddlegin hjörtu" sem er við Skúlagötu. Það er mjög skemmtilegur staður með "létt" hádegishlaðborð. Myndin sýnir hluta hópsins og á henni eru: Rannveig, Ásta, Anna Dagmar, Ívar og Hanna.


Úrslitakeppni undirbúin

Miðvikudagur 2. september 2009

Í kvöld fór ég á foreldrafund hjá 4. flokki í Knattspyrnudeild Aftureldingar. Eins og áður hefur komið fram á þessari síðu er eldri sonur okkar, Ágúst Logi, að æfa og spila með flokknum. Á foreldrafundinum var verið að fara yfir keppnisferð sem piltarnir okkar eru að fara í til Akureyrar um næstu helgi. Þá fer fram úrslitakeppni Íslandsmótsins í 4. flokki og verður spennandi að fylgjast með Aftureldingarpiltum þar. Á Akureyri keppa 4 lið af þeim 8 sem best stóðu sig í sumar og sigurvegarinn fer í úrslitaleikinn sjálfan.

Pétur 4 flokk

Mynd dagsins er reyndar ekki af foreldrafundinum heldur dró ég fram 25 ára gamla mynd. Málið er nefnilegast þannig að fyrir nákvæmlega 25 árum var ég í sömu sporum og Ágúst Logi. Fór þá með liði mínu, Skagamönnum í úrslitakeppnina og uppskárum þar Íslandsmeistaratiltil. Enginn pressa samt á piltinum að jafna þaðTounge  Fyrir þá sem ekki þekkja mig á myndinni þá er ég í rauðri peysu í neðri röð Cool 


Voff, voff!!!

Þriðjudagur 1. september 2009.

Að þessu sinni ætla ég að fá að svindla aðeins og nota mynd frá því á sunnudaginn fyrir mynd dagsins í dag. Á sunnudaginn voru við fjölskyldan í stórskemmtilegu afmæliskaffi í Unnarholtskoti við Flúðir (sjá færslu 30.08.09) en þar á bæ eignaðist tík heimilisins, hún Dimma, 5 hvolpa á dögunum. Þeir eru ægilega fjörugir og skemmtilegir þessa dagana og því gaman að leika sér við þá. Mynd dagsins er af nokkrum hvolpana sem nú er að halda í sína áttina hver til framtíðareigenda Smile

 

IMG_5654[1]

Bláber og Bleiki pardusinn

Mánudagur 31. september 2009

Seinni partinn í dag fóru Magnús Árni og Inga í berjamó upp á Mosfellsheiði. Í kvöldmatnum í kvöld hér á heimilinu var boðið upp á guðdómlegan eftirrétt sem Magnús Árni fékk sjálfur að velja og útbúa: Nýtínd bláber með sykri og rjóma og heilsudrykkinn Bleika pardusinn sem Magnús bjó til í fyrsta heimilisfræðitímanum sínum í skólanum í dag Smile 

IMG_5697[1]

Mynd dagsins er tekin við kvölmatarborðið í kvöld þegar verið er að gæða sér á eftirréttinum. Frá vinstri: Magnús Árni, Ágúst Logi og ég en Inga tók myndina að þessu sinni. Alltaf gaman þegar börnin eru sjálf að sjá um kvöldmatinn!


Afmælisdagur Ingu

Sunnudagur 30. ágúst 2009

Hún Inga mín, eiginkona síðustu 11 ár, á afmæli í dag. Venju samkvæmt hér í fjölskyldunni, var hún vakinn með afmælissöng og fékk færðan morgunmat í rúmið. Svo fórum við fjölskyldan í afmælisveislum við Flúðir þar sem systursynir Ingu, Kristinn Þór (9 ára) og Þorsteinn Ingi (2 ára) héldu upp á afmæli sitt með hnallþórum, hvolpasýningu og miklu fjöri. Dagurinn fór að mestu í ferðina á Flúðir en við fjölskyldan munum halda betur upp á afmælið hennar Ingu við betra tækifæri.

 

Inga

Mynd dagsins átti að vera af Ingu með afmælistertu, pakka og morgunverðin í rúminu en mér var harðbannað að setja þá mynd hér inn. Í staðir kemur hér mynda af henni Ingu þegar hún var 1 árs á seinni hluta síðust aldarWizard


Þvílíkur laugardagur!!!

Laugardagur 29. ágúst 2009

Vá! Þessi dagur var langur og annasamur en gríðarlega skemmtilegur. Eftir að hafa tekið morguninn rólega var ég mættur á Varmárvöll kl. 11:30 til að dæma knattspyrnuleik hjá yngri flokkum Knattspyrnudeildar Aftureldingar (sjá færslu  18. ágúst). Að leik loknum var hafinn mikil skemmtun tengd bæjarhátínni hér í Mosó, Í túninu heima. Kl. 15 vorum við fjölskyldan komin í afmæli til Fríðu Rósar frænku minnar, sem hélt upp á 3ja ára afmælið sitt. Mjög flottar tertur og skemmtilegur félagsskapur! Kl. 17 vorum við fjölskyldan svo mætt á túnið við Vífilsstaðaspítala þar sem vinnustaður minn, Hrafnista, hélt fjölskyldugrillhátíð í blíðunni. Grill fyrir 600 manns, dúettin Hljómur að spila, hoppukastalar, candy-flos og andlitsmálun fyrir börnin - gekk ótrúlega vel! Við stungum svo af úr þessari veislu til að vera komnn í götugrill í götunni okkar hér í Hrafnshöfðanum kl. 19 en það heppnaðist alveg ótrúlega vel og nágrannarnir aldeilis í góðum gír. Götugrillinu lauk upp úr kl.21 þegar skundað var á glæsilega útitónleika hér á torginu í Mosó með sem lauk með flottri flugeldasýningu. Upp úr kl. 23 héldum við Inga svo niður í íþróttahúsið að Varmá þar sem haldinn var stórdansleikur bæjarhátíðarinnar með Egó og Bubba og Pöpunum. Þetta var fjáröflunardansleikur fyrir knattspyrnudeild Aftureldingar. Við Inga tókum að okkur að vera barþjónar en alls vorum við um 15 barþjónar á þessum tæplega 1.000 manna dansleik. Vá! Ekkert smá brjálað að gera á barnum, sjaldan upplifað annað eins en þetta var nú samt bara mjög gaman!!! Ballinu lauk um kl. 3:30 og þá vorum við nokkur í um klukkustund að taka til áður maður komst í rúmið eftir langan, erilsaman en frábærlega skemmtilegan dag SmileSmileSmile

 

IMG_5638[1]

Mynd dagsins er úr götugrillinu í Hrafnishöfðanum. Þó hún sýni kannski ekki mörg brosandi andlit valdi ég hana til að fanga stemninguna. Við vorum með stór tjald til öryggis ef veður yrði vont en það þurfti nú varla í blíðunni sem var í dag og kvöld! 


Bæjarhátíðin byrjar vel!

Föstudagur 28. ágúst 2009

Nú undir kvöld hófst bæjarhátíð Mosfellsbæjar, Í túninu heima. Hátíðin var sett á laggirnar fyrir nokkrum árum og hefur vaxið jafnt og þétt með hverju ári. Bænum er t.d. skipt í fjóra hluta og íbúar í hverju hverfi hvattir til að skreyta hýbýli sín með hverfislitunum. Við erum í gula hverfinu og í dag var búið að skreyta mikið í götunni okkar og í nágrenninu. Reyndar er það svo að síðan þessi skreytingahefð var sett af stað hefur gula hverfið ávalt sigrað í keppninni um mestu og bestu skreytingarnar. Í kvöld var bæjarhátín sett á torginu og svo var skundað í skrúðgöngu yfir í Ullarnesbrekkur þar sem tendruð var brenna og brekkusöngur fór fram. Um 1.000 manns voru á svæðinu og fórum við öll fjölskyldan og skemmtum okkur vel.

 

skrudganga

Mynd dagsins er af nágrönnum okkar, Halla og Ólínu ásamt Ingu. Þau standa hér við gulan bíl þeirra hjóna sem notaður var til að leiða skrúðgönguna í kvöld en skrúðgangan er hverfaskipt og íbúar skreyta sjálfa sig í lit þeirra hverfis. Halli, Ólína, Inga, Magnús Árni og Elísabet (dóttir þeirra hjóna) tróðu sér í gula bílinn og tóku að sér skrúðgöngustjórnunina sem tókst mjög vel. Myndin er tekin þegar þau hafa lagt bílnum og eru að koma út. Því miður var ég ekki með myndavél , þannig að gæðin á mynd dagsins eru ekki góð. Engu að síður var mjög gaman að sjá bílinn koma og hina litskrúðugu skrúðgöngu fylgja á eftir.


Góður dagur fyrir Westan

Fimmtudagur 27. ágúst 2009

Í dag var ég á ferð um sunnanverða Vestfirði vegna vinnu minnar. Auk fundahalda skoðaði ég meðal annars nýlega og vaxandi kísilþörungaverksmiðju á Bíldudal. Fór svo í Sjóræningjahúsið á Patreksfirði sem er mjög gaman að koma í en það er gömul smiðja sem verið er að breyta smá saman. Virkilega ánægjulegt og mæli með að fólk kíki í Sjóræningjahúsið ef ferðinni er heitið á Patró. Ég tók svo ferjuna Baldur frá Brjánslæk og yfir í Stykkishólm með viðkomu í Flatey en ég hef ekki siglt með Baldri áður. Þetta var skemmtilegur dagur!

IMG_5578[1]

Mynd dagsins er af Flatey á Breiðafirð tekin úr flóabátnum Baldri.


Fyrsti skóladagur Magnúsar Árna

Miðvikudagur 26. ágúst 2009

Dagurinn í dag er aldeilis stór dagur i lífi Magnúsar Árna. Hann er að byrja í 6 ára bekk hér í Lágafellsskóla. Við Inga fórum með honum í morgun, hittum kennarann og fengu stundatöfluna. Magnús þekkir flesta í bekknum og er gríðarspenntur að byrja.

 

IMG_3418

Mynd dagins verður auðvitað að vera að skólapiltinum Magnúsi Árna á fyrsta skóladeginum. Búinn að fá nýja skólatösku. Ekkert smá flottur strákurSmile


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband