23.7.2009 | 22:57
Hvað er WASGIJ?
Fimmtudagur 23. júlí 2009
Síðustu ár hefur verið ein af föstu hefðunum við jólin hjá okkur í fjölskyldunni að púsla saman eitt risastórt fjölskyldupúsl. Hugmyndin er að hafa það á stofuborðinu og fjölskyldumeðlimir og gestir geti gripið í þegar púsllöngunin grípur. Síðustu ár hefur Magnús Árni verið mjög duglegur í þessu fjölskylduverkefni og núna, þegar allir eru saman heima í fríi (eins og á jólunum) fannst honum viðeigandi að ráðist yrði í sameiginlegt fjölskyldupúsl. Fyrir valinu varð eitt af hinum skemmtilegu WASGIJ? púslum. Þetta er hollenskt (skýrir nafnið ) og eru þau sem til eru á heimilinu 1000 bita. Það sem gerir þessi púsl sérstök - og um leið skemmtileg - er að púslararnir vita ekki hvaða mynd þeir eru að púsla. Myndin framan á kassanum sýnir jafnan hóp af mjög undrandi fólki í ýmsum aðstæðum. Púslið gengur svo út á að finna út á hvað þetta ágæta, undrandi fólk er að horfa og þar með hvað gerir fólkið svona hissa eða undrandi. Á mánudaginn byrjaði Magnús að púsla og í morgun kláraðist verkið, reyndar með dyggri hjálp foreldranna.
Mynd dagsins er að Magnúsi Árna með WASGIJ? púslið. Fremst á myndinni er kassinn með vísbendingarmynd um hvað púslarinn á að fara á púsla og svo kemur meistaraverkið sjálft. Við byrjuðum fljótlega á að hafa púslin á pappaspjaldi þannig að mjög fljótlegt er fjarlægja púslið af stofuborðinu, án skemmda, ef nota þarf borðið í öðrum tilgangi meðan púsl-vertíð stendur yfir. Þetta er þrælskemmtilegt
Athugasemdir
Ætlunarverk þitt með þessu bloggi tókst með þessari mynd. Lífið er skemmtilegt, þrátt fyrir pestir og aðra óáran.
Takk fyrir þetta gleðiblogg.
Hólmfríður Pétursdóttir, 24.7.2009 kl. 09:17
Nafnið Wasgij er Jigsaw afturábak eða öfugt eða eins og þessi pússl eru eiginlega, svona soldið öfug.
Pússlari (IP-tala skráð) 25.7.2009 kl. 00:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.