Laugavegsganga undirbúin

Þriðjudagur 14. júlí 2009

Í kvöld stendur yfir undirbúningur fyrir göngu um "Laugaveginn" sem ég er að fara í á morgun. Um er að ræða alls 5 daga ferð með Ferðafélagi Íslands þar sem ég verð fararstjóri ásamt Ingimar tengdapabba. Löngu er uppselt í ferðina en alls eru 20 pláss í boði. Ferðin er eignilega Delux útgáfa. Við göngum í fjóra daga, 4-6 tíma á dag og á kvöldin eru svo í boði valferðir fyrir ferðalangana; bæði löng og stutt ferð. Farangurinn verður fluttur á milli skála fyrir fólk en gististaðir eru hefðbundnir; Hrafntinnusker, Álftavatn, Emstrur og Þórsmörk. Á laugardaginn munum við koma inn í Þórsmörk og þá verður skellt upp grillveislu. Harmonikkan verður með í för og á kvöldin verða kvöldvökur með söng og glensi Smile veðurspáin þokkaleg og annað eins og best verður kosið!

 

IMG_2987[1]

Mynd dagsins var tekin nú í kvöld og sýnir Ingimar tengdapabba og Ágústi Loga við undirbúning fyrir ferðina. Þeir eru að brjóta saman söngtextana sem eru nauðsynlegir í svona ferð og í baksýn grillir í bakpoka og fleira dót sem verið er að pakka.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband