7.7.2009 | 00:41
Tönn fyrir tannálfinn
Mánudagurinn 6. júlí 2009
Magnúsi Árna gekk mjög illa að sofna í gærkvöldi. Ástæðan var sú að nú er báðar stóru framtennurnar í eftri góm lausar. Eftir mikið fjaðrafok og aðgerðir, losnaði loks lausari tönnin. Venju samkvæmt í fjöslkyldunni var tönnin sett undir koddan og tannálfurinn kallaður til. Hann kom svo í nótt og sett samviskusamlega pening undir koddan í tanngjald. Aldrei þessu vant skildi tannálfurinn samt tönnina eftir og vild að Magnús Árni myndi eiga tönnina sjálfur - skrýtið!?!
Mynd dagsins er af tannlausa piltinum Magnús Árna sem er nú orðin aðeins "smámæltur" eftir að vera kominn með þetta skemmtilega skarð
Athugasemdir
Hamingjuóskir til Magnúsar Árna. Við á þessum bæ þekkjum hvað það er ótrúlega stór áfangi að missa fyrstu tönnina.
Sumarkveðjur
Sigrún og Ástrós Elísabet, sem eru að fara til Neskaupstaðar í vikuheimsókn
Sigrún og Ástrós Elísabet (IP-tala skráð) 9.7.2009 kl. 09:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.