5.7.2009 | 13:28
Brekkusöngur og Lopapeysuball á írskum dögum
Laugardagur 4. júlí 2009
Í dag fórum viđ fjölskyldan upp á Akranes og tókum ţátt í bćjarhátíđinni "Írskir dagar" sem stendur yfir ţessa helgina. Eftir ađ hafa skođađ risastórt markađssvćđi og drengirnir höfđu fariđ hamförum í litlu ferđatívolíi, var grillađ á Bjakargrundinni hjá mömmu og pabba í ljómandi fínu veđri ţó ekki vćri mikil sól. Um kvöldiđ fórum viđ svo á Brekkusöng á íţróttavellinum ţar sem Eyjólfur Kristjánsson stjórnađi fjöldasöng. Ţessi dagskrárliđur var samvinnuverkefni milli Lopapeysuballsins og nokkurra sprelligosa úr vinahóp mínum, Club'71 (sjá fćrslu 23. maí) og haldiđ í fyrsta skipti í ár. Viđ renndum ţví alveg blint í sjóinn hvađ kćmu margir og hvernig til tćkist. Ţetta fór ţó allt á besta veg; ég hafđi veriđ platađur til ađ vera kynnir og ţegar ég kynnti Eyjólf til leiks voru mörg hundruđ manns mćttir. Áđur en yfir lauk, rétt fyrir miđnćttiđ, voru komnir vel yfir ţúsund manns. Eyfi náđi upp miklu stuđi og ţetta framtak heppnađist gríđarleg vel. Á eftir fórum viđ Inga svo á hiđ frćga Lopapeysuball ţar sem yfir 3000 manns voru og viđ hittum fjöldan allan af gömlum vinum og kunningjum. Viđ tjúttuđum svo fram á nótt viđ undirleik Bubba og EGO, og svo Sálarinnar hans Jóns míns sem hćtti ekki ađ spila fyrr en rétt fyrir fjögur. Ţá var nú líka kominn tími fyrir okkur skötuhjúin ađ halda heim eftir skemmtilegan dag og frábćrt kvöld (og nótt)
Mynd dagsins er frá brekkusöngnum í kvöld. Eyjólfur er í rauđri úlpu lengst til hćgri og eins og sjá má var dágóđur fjöldi á svćđinu, um 1200 manns - og mikiđ gaman ađ sjálfsögđu!
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.