29.6.2009 | 23:15
Costa del Rauðasandur
Sunnudagur 28. júní 2009
Hvatberar fengu að sofa út í dag í Rauðsands/Látrabjargsferðinni. Það var glampandi sól og blíða og um kl. 11 þegar fór að flæða að yfir sandinn skelltu flestir úr hópnum sér út í sjóinn enda er Rauðasandur ein glæsilegasta baðströnd landsins. Hægt er að vaða gríðarlega langt út án dýpkunar og þegar sólin hefur hitað upp sandinn áður en byrjar að flæða að verður sjórinn nánast ylvoglur. Þetta nýttu Hvatberar sér í dag til baðferða áður en haldið var í ferð dagsins sem lá yfir í Sauðlauksdal og síðan var flug- og minjasafnið að Hnjóti skoðað. Að loknu grilli að Hvarlátrum var haldið í 10 km miðnæturgöngu eftir Látrabjargi sem líður okkur seint úr minni.
Mynd dagsins er á sundgörpum á Rauðasandi í morgun. Alveg hreint frábært að vera þarna í blíðunni. Við fjölskyldan erum fyrir miðri mynd.
Athugasemdir
Gaman að sjá fína umfjöllun um þetta svæði - Rauðisandur stendur einmitt oft undir nafni sem "Costa del ".
Anna, 29.6.2009 kl. 23:31
Samkvæmt heimildum heimamanna heitir þarna Rauðasandur í nefnifalli kennt við einhvern Rauða, sem ég man ekki að sinni hver var, á einhvers staðar handskrifað í Vegahandbók aldraðs manns sem var manna fróðastur um örnefni á þessum slóðum.
Kveðjur
Hólmfríður Pétursdóttir, 30.6.2009 kl. 13:06
Takk fyrir ábendinguna Hólmfríður - búinn að breyta
Ljósmyndadagbók Péturs Magnússonar, 3.7.2009 kl. 00:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.