29.6.2009 | 22:31
100 ára afmæli ömmu
Föstudagur 26. júní 2009
Í dag á amma, Guðný Maren Oddsdóttir (mamma hans pabba) hvorki meira né minna en 100 ára afmæli. Af þessu tilefni var blásið til afmælisveislu seinni partinn í dag þar sem nánustu ættingjar komu saman og samfögnuðu með afmælisbarninu á Dalbrautinni þar sem hún býr. Þetta var fínasta veisla. Við vorum búin að smala saman myndum tengdu lífshlaupi ömmu og sýndum þær í skjávarpa. Þessar myndir vöktu mikla lukku enda sumar myndanna sem fáir höfðu séð. Amma var hin ánægðasta með daginn.
Mynd dagsins er af henni ömmu, Guðnýju Maren Oddsdóttur. Myndin er reyndar ekki tekin í dag, heldur fyrir um 80 árum þegar amma var um tvítugt. Mér finnst myndin svo flott að hún á sannarlega heima hér á þessari síðu.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.