Fæðingarveisla folaldsins Dulúðar

Sunnudagurinn 21. júní 2009

Í dag dvöldum við fjölskyldan í Unnarholtskoti, rétt við Flúðir. Þar býr Kristín Erla mágkona mín ásamt fjölskyldu sinni. Piltarnir okkar, Ágúst og Magnús, voru hjá þeim um helgina en reyndar er Ágúst búinn að vera hjá þeim í heila viku. Síðast liðna nótt kom fallegasta folald í heiminn hjá þeim í kotinu. Það var búin að ríkja mikil spenna hjá krökkunum fyrir tímamótunum og ekki síður hjá sveitungunum sem flykktust að til að skoða gripinn í dag Tounge Fæðinguna þurfti að halda upp á og sjálfsagt voru yfir 20 manns í kaffi í Unnarholtskoti í dag, þegar mest var. 

IMG_0976[1]
 

Mynd dagsins er af folaldinu Dulúð, sem er hér rúmlega 12 klst gamalt, með mömmu sinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ hæ, alveg frábær ljósmyndadagbók hjá þér Pétur, ákaflega gaman að líta á hana, ég stoppaði nú aldeilis við þegar ég sá nú myndir af hestum við vorum líka að fá folald fyrir rétt nokkrum dögum síðan, virkilega gaman. Bestu kveðjur og sjáumst fljótlega fyrir vestan.

Sigga og co

Sigríður Bergvinsdóttir (IP-tala skráð) 23.6.2009 kl. 00:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband