12.6.2014 | 00:06
Kvennahlaupi þjófstartað
Miðvikudagurinn 11. júní 2014
Það eru mörg og vandasöm verk sem ég þarf að taka að mér í vinnunni. Í dag fór fram Kvennahlaupið á Hrafnistu í Reykjavík þar sem hátt í 100 konur (og nokkrir karlar) fóru út í sólina til að taka þátt. Ég fékk það skemmtilega en vandasama verkefni að hengja verðlaunapeninga um hálsinn á þátttakendum þegar komið var í mark og tókst það að mestu leiti bara ágætlega þó ég segi sjálfur frá
Kvennahlaupið er annars skemmtilegt framtak sem fagnar 25 ára afmælið í ár. Ein af upphafskonum hlaupsins, Lovísa Einarsdóttir, var einmitt samstarfskona mín á Hrafnistu í nokkur ár, áður en hún lést fyrir aldur fram. Á síðustu árum hefur skapast sá skemmtilegi siður á Hrafnistuheimilunum að hvert heimili heldur sitt eigið kvennahlaup rétt eins og ýmsir kaupstaðir og þorp úti á landi. Þar sem Hrafnistufólk er mjög dugmikið, þurfum við alltaf að vera á undan aðal-hlaupdeginum (sem er á laugardaginn). Hlaupið fór því fram á Hrafnistu í Reykjavík í dag, verður á Hrafnistu í Kópavogi á morgun og Hrafnistu Hafnarfirði á föstudag.
Mynd dagsins er tekin fyrir utan Hrafnistu í Reykjavík í dag þar sem árlegt kvennahlaup fór fram í blíðskaparveðri. Við þjófstörtuðum hlaupinu aðeins þar sem formlegur dagur hlaupsins er næsta laugardag. Þarna er ég að byrja að hengja verðlaunapeninga á þátttakendur en til hliðar má sjá alla verðlaunapeningana og samstarfsfólk mitt (Böðvar með harmonikkuna og Sigrúnu forstöðumann) ásamt heimilisfólki. Tekið var á móti þreyttum hlaupurum með harmonikkuleik, ávöxtum og svaladrykkjum. Þetta var því mjög ánægjuleg stund og gaman að fá að hjálpa til.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.