23.2.2010 | 23:01
Og þá er það bolludagurinn!!!
Mánudagur 15. febrúar 2010
Ég rétt náði að stökkva fram úr rúminu í morgun áður en Magnús Árni var mættur með bolluvöndinn inn í svefnherbergi til að "bolla" okkur foreldrana rækilega. Hann gerði forláta bolluvönd í skólanum á föstudaginn og var búin að bíða spenntur alla helgina eftir að fá að nota gripinn. Þeir bræður fengu auðvitað bollur með sér í nesti í skólann. Ég fékk kjötbollur í hádeginu í vinnunni og ljúffengar rjómabollur í síðdegiskaffinu. Ég borðaði reyndar óvenjufáar bollur í dag miðað við síðustu bolludaga þar sem ég hef lagt mig virkilega fram í bolluátinu. Einn eftirminnilegasti bolludagur á síðustu árum rifjast alltaf upp fyrir mér á þessum degi. Þá var ég að vinna í samstarfið við nokkra Dani og sendi þeim tölvupóst að á Íslandi væri "bollu-dagur" í dag. Það var ekki liðið nema andartak þegar allir símar tóku að hringja og voru það Danirnir sem trúðu ekki eigin augum þegar þeir sáu tölvupóstinn - hvað væri eiginlega í gangi hjá okkur klikkuðu Íslendingunum!!! Þeir sem eru ekki vel að sér í dönsku slangri verða sjálfir að finna út hvað þeir dönsku voru að misskilja... Í tilefni dagins verður myndin í dag að vera almennileg bollumynd - nammi namm!!!
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.