27.1.2010 | 22:00
Pési grallaraspói og Mangi vinur hans!
Mánudagur 18. janúar 2010
Þessa dagana eru við Magnús Árni að lesa saman söguna "Pési grallaraspói og Mangi vinur hans". Þessi saga er um 40 ára gömul og er eftir danska rithöfundinn Ole Lund Kirkegaard. Ole þessi er líklega þekktastur fyrir söguna um Gúmmí-Tarsan. Höfundurinn samdi nokkrar mjög skemmtilegar sögur fyrir 30-40 árum eins og Fúsi froskagleypir, Hodja og töfrateppið og Ottó nashyrningur. Þegar ég var strákur voru þessar sögur í miklu uppáhaldi hjá mér enda eru allar sögurnar um mikla prakkara sem þora alveg að bjóða hinum fullorðnu birginn sem og ýmsum sem eru ekki góðir. Við Magnús erum búnir að hlægja mikið af sögunni og byrjuðum nú bara á því að hlæja að nafninu. Það er alveg ljóst að við eigum eftir að lesa saman fleiri sögur eftir þennan skemmtilega höfund.
Mynd dagins sýnir Magnús Árna steinsofnaðan með hina stórskemmtilegu bók um Pésa grallaraspóa og Manga vin hans
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.1.2010 | 22:00
Mjallhvít og mýrarboltinn!
Sunnudagur 17. janúar 2010
Eftir hádegið í dag brugðum við Magnús Árni okkur í leikhús. Meðan Inga sat heima með Ágústi Loga, sem var að læra undir próf, héldum við Magnús í bæjarleikhúsið hér í Mosfellsbænum. Þar er Leikfélag Mosfellssveitar að sýna barnasýninguna um Mjallhvíti og dvergana sjö. Þetta var hin skemmtilegasta sýning eftir hefðbundnum söguþræði þessa fræga ævintýris. Búið var að semja nokkur lög og texta sem krydduðu sýninguna með fínum hætti. Eftir að komið var heim fórum við feðgar, allir þrír, út á fótboltavöllinn hér fyrir utan ásamt Elísabetu vinkonu Magnúsar. Þar var farið í fótbolta, sem fljótlega fór þó að breytast í mýrarbolta þar sem ferkar heitt var úti og smá væta. Við byrjuðum að renna á hausinn, eitt af öðru með tilheyrandi hlátrasköllum. Að leik loknum komu allir heim skellihlægjandi en blautir og skýtugir eins og vera ber í góðum mýrarbolta. Ótrúlega hressandi samt
Að lokinni sýningu á Mjallhvíti máttu gestir heilsa upp á ævintýrahetjurar og láta taka af sér myndir. Magnús Árni var alls ekki til í það og vild bara fara beint heim. Það tókst því ekki að mynda hann með ævintýrahetjunum. Mynd dagins er því fengin að láni hjá Leikfélaginu og sýnir Mjallhvíti ásamt ungum aðdáendum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)