21.1.2010 | 22:18
Þorrablótið að bresta á!
Miðvikudagur 13. janúar 2010
Nú styttist í hinn skemmtilega mánuð, Þorra. Það hefur alltaf þótt góður og þjóðlegur siður að blóta Þorra með því að koma saman, snæða kjarngóðan íslenskan mat og eiga góða stund. Síðustu ár höfum við Inga mætt strax á öðrum degi Þorra á Þorrablót Aftureldingar hér í Mosfellsbænum. Þetta er risa-þorrablót sem haldið er í íþróttamiðstöðinni hér í Mosfellsbænum. Um 500-700 manns mæta í matinn og boðið er upp á fyrsta flokks skemmtiatriði. Félagarnir Sveppi og Auddi verða kynnar þetta árið. Á eftir er svo alltaf stórdansleikur, að þessu sinni með Ingó og veðurguðunum og þá bætast nokkur hundruð manns við. Knattspyrnudeild og handknattleiksdeild Aftureldingar halda blótið saman og rennur allur ágóði til uppbyggingar barna- og unglingastarfs í íþróttafélaginu. Við Inga munum mæta til að eiga góða stund með sveitungum okkar og styrkja gott málefni í leiðini.
Mynd dagsins er tekin á bensínstöð N1 hér í Mosfellsbænum nú í kvöld. Þar hófst miðasala á risa-þorrablót Aftureldingar sem haldið verður á öðrum degi Þorra. Ég var mættur tímanlega til að krækja í gott borð fyrir minn hóp. Undirbúningsnefnd þorrablótsins var mætt á svæðið og bauð okkur miðakaupendum upp á nett staup af Brennivíni svona rétt til að kynda upp stemninguna! Á myndinni eru nokkrir af hinni samhentu og öflugu þorrablótsnefnd og í forgrunni er Hanna Sím að skenkja Rúnari forseta þorrablótsnefndarinnar af íslenskum öndvegisdrykk sem örugglega mun verða brúkaður frekar á þorrablótinu. Spennandi þorrablót framundan
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.1.2010 | 22:18
Afmælisnefnd Vífilsstaða stofnuð
Þriðjudagur 12. janúar 2010
Seinni partinn í dag tók ég þátt í skemmtilegum fundi. Forsagan er sú að hið sögufræga hús, Vífilsstaðaspítali, sem upprunalega var kallað Vífilsstaðahæli, fagnar 100 ára afmæli í september á þessu ári. Vífilsstaðir voru upprunalega byggðir sem spítali fyrir berklasjúklinga en berklar, sem stundum hafa verið kallaður "Hvíti dauðinn", voru þá með illvígustu sjúkdómum sem fundust hér á landi. Upp úr miðri síðustu öld byrjuðu að koma fram lyf við berklum og í dag er sjúkdómurinn ekki vandamál hér á landi. Hlutverk Vífilsstaða hefur því verið að breytast. Hrafnista, vinnustaður minn, rekur nú hjúkrunarheimili í húsinu og hefur gert síðustu 6 ár eftir viðamiklar breytingar á húsinu. Þó Hrafnista hafi því aðeins komið að sögu þessa merka staðar 6 ár af öllum 100 árunum viljum við gjarnan standa fyrir því að þessa afmælis verði minnst með viðeigandi hætti enda skipar saga Vífilsstaða merkilegan sess í sögu þjóðarinnar. Vegna þessa stóðum við í dag að stofnun afmælisnefndar í samvinnu við helstu aðila sem að sögu hússins hafa komið gegnum tíðina. Allir tóku vel í að vera með í afmælisnefndinni eins og SÍBS (B-ið stendur nefnilega fyrir berkla), Oddfellow-reglan sem stóð að byggingu hússins á sínum tíma, Garðabær, Landspítali og ýmsir áhugamenn um sögu staðarins. Við áttum fínan fund og ég varð margs fróðari um sögu þessa merkilega staðar. Það var mikill hugur í fólki og því er ljóst að 100 ára afmælis Vífilsstaða verður minnst með glæsibrag - bara gaman að taka þátt í því.
Mynd dagsins er af Vífilsstöðum. Þarna var reist glæsilegt hús undir spítala, læknisbústaður, fjós og fleira. Vífilsstaðir fagna 100 ára afmæli í haust og í dag var ég á fundi afmælisnefndar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.1.2010 | 22:18
Ættingjar láta gott af sér leiða
Mánudagur 11. janúar 2010
Það var nóg að gera í vinnunni hjá mér í dag og í raun fram á kvöld. Í kvöld var ég gestur á stjórnarfundi Ættingjabandsins en það er ættingja- og vinasamband heimilisfólks á Hrafnistu í Reykjavík, eins af vinnustöðum mínum. Markmiðið er að stuðla að vellíðan heimilisfólksins á sem flestan hátt og geta að allir sem eiga ættingja og eða vini á Hrafnistu eru sjálfkrafa meðlimir sambandsins. Ættingjabandið stendur árlega fyrir ýmsum uppákomum s.s. aðventukvöld og skemmti- og fræðslukvöld fyrir heimilisfólk og gesti. Á sumrin hefur svo Ættingjabandið tekið þátt í skipulagningu og framkvæmd sumarferðar heimilisfólksins á Hrafnistu þannig að þetta er stórmerkur og góður félagsskapur. Í kvöld var semsag fyrsti stjórnarfundur Ættingjabandsins á þessu ári en stjórnin hittist reglulega til þess að skipuleggja og undirbúa þau verkefni sem framundan eru. Það var því gaman að hitta þau nú í kvöld og heyra um það göfuga og skemmtilega starf sem framundan er. Mynd dagsins er fengin að láni af heimasíðu Hrafnistu og sýnir hörkustuð á einni af skemmtunum ættingjabandsins fyrir heimilisfólkið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.1.2010 | 20:58
Þetta er hann KISS
Sunnudagur 10. janúar 2010
Eftir rólegan dag fórum við fjölskyldan saman í sund núna seinni partinn. Það var Lágafellslaugin hér í nágrenninu sem varð fyrir valinu eins og oft áður. Eftir ljómandi góðan þvott á allri fjölskyldunni fengu piltarnir að velja kvöldmatinn og fyrir valinu varð að fara á veitingastaðinn American Style við Bíldshöfða. Þar eru ljómandi góðir borgarar í boði fyrir okkur strákana og húsfreyjan fékk hollustu-sallad. Á veggjum vetingastaðarins eru myndir af ýmsum helstu stórmennum tónlistarsögunnar. Við tókum eftir að á einum veggnum var þessi líka fína mynd af hljómsveitnni KISS í öllu sínu veldi. Þessi hljómsveit var eftirlætishljómsveitin mín í mörg ár þegar ég var yngri. Fyrir utan að spila kröftugt og fjörugt rokk gerir hljómsveitin (sem ennþá er starfandi) mikið út á sviðsframkomu og eru til dæmis allir meðlimirnir málaðir sérstaklega í framan - alltaf á sama hátt og hafði hver meðlimur sveitarinnar eigin útfærslu sem gerir alla meðlimina auðþekkjanlega. Hefur þetta haldið sér ennþá fram á daginn í dag. Kiss var ein vinsælasta hljómsveitin þegar ég var í skóla og andlitsmálningin gerði það að verkum að tiltölulega auðvelt var að teikna meðlimi hljómsveitarinnar. Hljómsveitarmeðlimir urðu því oft fyrir valinu þegar maður var í teikningu og myndlist í skólanum. Eftirminnilegt atvik átti sér stað þegar ég var í 10 eða 11 ára bekk í teikningu þegar margir okkar strákana völdu að teikna okkar uppáhaldsmeðlim í hljómsveitinni. Einn var þó ekki alveg með á nótunum en vildi þó falla í hópinn og teiknaði einn meðlim sveitarinnar. Það varð þó mikill hlátur í bekknum þegar myndlistarmaðurinn hafði ritað undir myndina: "Þetta er hann KISS".
Mynd dagsins er tekin á veitingastaðnum American style við Bíldshöfða þar sem við fjölskyldan fengum okkur í svanginn nú í kvöld eftir sundferð dagsins. Á veitingastaðnum eru myndir af ýmsum frægum tónlistarfólki rokk- og poppsögunnar og þarna hef ég stillt mér upp við myndina af hljómsveitinni KISS.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)