23.10.2009 | 00:03
Pizzuveisla á Skaganum
Fimmtudagur 22. október 2009
Í dag var Inga að vinna á kvöldvakt. Við feðgar notuðum tækifærið seinni partinn og fórum í heimsókn til pabba og mömmu á Skaganum. Þetta er nú bara skottúr hérna úr Mosfellsbænum, aðeins um 25 min keyrsla. Strákarnir áttu þar góða stund með ömmu og afa (og ég auðvitað líka). Skötuhjúin á Skaganum komu okkur feðgum nú á óvart með því vilja endilega panta handa okkur pizzu áður en farið var til baka í Mosfellsbæinn. Eins og við var að búast slógu piltarnir ekki hendinni á móti þessu tilboði. Við vorum svo komnir til baka um hálf-átta en þá þurfti Ágúst að fara á fótboltaæfingu en Magnús að fara að hátta.
Mynd dagsins er úr pizzuveisluni hjá ömmu og afa strákanna á Skaganum í dag. Mjög gaman
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)