8.5.2009 | 00:30
Fararstjóranámskeið hjá Ferðafélaginu
Fimmtudagur 7. maí 2009
Í kvöld fór á fararstjóranámskeið hjá Ferðafélagi Íslands. Ég hef nokkur undanfarin ár fiktað við að vera fararstóri í einstaka gönguferðum, aðallega ásamt Ingimar tengdapabba. Þetta er mjög gaman og í sumar ætlum við að taka að okkur að vera fararstjórar í a.m.k. einni ferð um "Laugaveginn." Á námskeiðinu í kvöld voru 20-30 fararstjórar, sumir nýjir en aðrir með áratuga reynslu. Farið var yfir ýmis hagnýt atriði sem tengjast fararstjórn og góður tími gefinn í umræður þar sem fólk skiptist á skoðunum og reynslusögum. Mjög spennandi námskeið sem kom manni aldeilis í göngugírinn fyrir sumarið.
Mynd dagsins er af mér við gluggann á skrifstofu Ferðafélagsins. Þessi gluggi er nú sérstakur fyrir þær sakir að þar er risastór mynd af okkur Ingu, Kristínu vinkonu okkar og Ástþóri vini okkar ásamt Haraldi Erni fjallagarpi sem tekin er á toppi Hvannadalshnjúks árið 2005 í blíðskaparveðri. Það er ekki oft sem myndir af manni eru stækkaðar í fulla stærð og maður nýttur sem fyrirsæta. Það var því tilvalið að eiga eina mynd af afrekinu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.5.2009 | 23:07
Magnús Árni lærir að hjóla
Miðvikudagur 6. maí 2009
Það var frábært veður í dag. Eftir vinnu og leikskóla fórum við Magnús Árni út í garð í vorverkin og vorum bara nokkuð duglegir. Hápunktur dagsins verður nú samt að teljast þegar við skrúfuðum hjálpardekkin undan hjólinu hans Magnúsar og hann lærði að hjóla án hjálpardekkjanna. Mjög gaman að upplifa þetta með honum og þetta gekk bara ótrúlega vel.
Á mynd dagsins sést Magnús Árni á hjólinu - búinn að læra að hjóla án hjálpardekkjanna. Hann datt nú ótrúlega lítið og var hinn duglegasti.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.5.2009 | 23:19
Strákarnir pulsa sig upp!
Þriðjudagur 5. maí 2009
Inga var á kvöldvakt í kvöld þannig að við strákarnir vorum einir heima. Þetta gerist u.þ.b. einu sinni í viku og þá getum við haft spennandi "strákamat". Við höfum reyndar oft fisk við þessi tækifæri en í kvöld völdum við eitthvað mjög fljótlegt til að elda og borða þar sem það var spennandi fótboltaleikur í sjónvarpinu - meistaradeildin. Það var því ofan á að við fengum okkur gamla góða þjóðarrétt Íslendinga - pylsur!
Mynd dagsins er að strákunum, Magnúsi Árna og Ágústi Loga að pulsa sig upp á strákakvöldi heimilisins!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.5.2009 | 00:48
Hversdagslegu hlutirnir eru líka skemmtilegir
Mánudagur 4. maí 2009
Ég var nokkuð þreyttur í dag þó ég hafi sofnað vel og snemma. Vinnudagurinn hefðbundinn en skemmtilegur og í ýmis horn að líta eftir langa helgi.
Myndin í dag er af mér ásamt Magnúsi Árna og Elísabetu Tinnu vinkonu hans. Við vorum að spila dýra-yatzy sem er mjög vinsælt. Ég valdi þessa mynd til að minna mig á að hversdagslegu hlutirnir geta líka verið mjög skemmtilegir og gefandi - það þarf ekki alltaf að vera eitthvað stórmerkilegt að gerast til að það sé gaman að lifa
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.5.2009 | 00:28
Gustaði vel á göngugarpa
Sunnudagurinn 3. maí 2009
Í dag var stóri dagurinn - Hvannadalshnjúksganga á dagskrá! Í stað þess að fara sofa um miðnætti eins og maður gerir venjulega, fór gönguhópurinn út í rútu frá gistiheimlinu Hvoli og keyrði að Sandfelli þar sem gangan á Hvanndalshnjúk hófst um kl. 1:30. Þrátt fyrir myrkur í upphaf ferðar var skemmtileg upplifun að sjá halarófu göngugarpa liðast um í myrkrinu, allir með höfuðljós. Veðrið var fínt í byrjun og töluvert var um aðra gönguhópa - líklega um 100-200 aðrir að klífa tindinn á þessum morgni í 4-5 misstórum hópum. Við vorum komin á jökulinn sjálfan um kl 7. Þá festum við okkur í línum og lögðum í brekkuna löngu. Mjög fljótlega fór þó að hvessa mjög hraustlega og við gengum í þoku og kófi. Eftir um 2 klst datt farastjórinn í línunni okkar 2-3 metra niður í sprungu. Honum varð þó ekki meint af þó hann tapaði GPS tækinu sem við vorum að ganga eftir. Hann var vasklega hífður upp og ferðinni haldið áfram. Eftir um 3 tíma brölt í þessar óspennandi veðuraðstæður vorum við komin í um 1800 metra hæð. Þá var ákveðið að láta gott heita og snúa niður aftur. Flestir hinir hóparnir á fjallinu höfðu gert það sama enda töluvert algengt að veðrið trufli göngugarpa í efsta hluta tindsins.
Mynd dagsins er að sjálfsögðu tekin á Hvannadalshnjúk. Þarna erum við í um 1500 m hæð. Í efri hluta tindsins var lítið um myndatökur vegna kulda og vinds en ég gat þó ekki annað en dregið upp myndavélina þegar 10 austurískir skíðamenn birtust skyndilega út úr kófinu og renndu sér fagmannlega niður jökulinn. Þó að toppnum hafi ekki verið náð í þetta skiptið var ferðin öll hin skemmtilegasta!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.5.2009 | 00:05
99 ára og keyrir ennþá bíl
Laugardagur 2. maí 2009
Dagurinn í dag má með sanni kallast laugardagurinn langi. Við Inga erum ásamt mosfellska gönguhópnum að bíða eftir góðu veðri til að ganga á Hvannadalshnjúk. Fljótlega eftir að við vöknuðum á gistiheimilinu Hvoli kom í ljós að besta veðrið til að ganga á hnjúkinn yrði líklegast að fara upp úr miðnætti og byrjað yrði að ganga milli 1 og 2 um nóttina. Dagurinn fór því aðallega í að bíða og hvíla sig vel fyrir gönguna miklu. Um miðjan dag skellti hópurinn sér þó í skoðunarferð á Núpsstað sem er í næsta nágrenni við gisitiheimilið. Þar er gömul kapella og bæjarstæði í ótrúlega fallegu umhverfi - eitt það fallegast á landinu. Ekki spillti svo fyrir að ábúandinn, Filippus Hannesson kom og heilsaði upp á okkur - kappinn verður 100 ára í desember, keyrir bíl og er allur hinn hressasti.
Mynd dagsins er af Filippusi ábúanda á Núpsstað fyrir utan íbúðarhúsið sem byggt var upp úr 1920. Filippus kom keyrandi heim að bænum þegar við vorum þarna að skoða svæðið. Mjög gaman að tala við karlinn sem var alveg ótrúlega hress - heyrði vel og var hnyttinn í tilsvörum, ekki hægt að sjá að hér væri 99 ára maður á ferð. Hvet alla til að stoppa á Núpsstað og ganga um svæðið - mjög fallegt og skemmtilegt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.5.2009 | 23:37
Pizzupartý á Klaustri
Föstudagur 1. maí 2009
Í dag var langt í hann austur á land til móts við sjálfan Hvannadalshnjúk sem á að smella sér upp á, á morgun eða sunnudag - stefnir nú reyndar frekar í sunnudag. Við Inga erum að fara ásamt tæplega 40 manna hópi sem tengist Mosfellsbæ með ýmsum hætti, grunnurinn er þó starfmenn Mosfellsbæjar. Lögðum af stað með rútu um hádegi og munum gista í gistiheimilinu Hvoli sem staðsett er milli Kirkjubæjarklausturs og Skaftafells.
Mynd dagsins er frá kaffihúsinu Systrakaffi sem staðsett er á Kirkjbæjarklaustri. Eftir að hafa komið á gististað um klukkan fimm fór hluti hópsins á Kirkjubæjarklaustur að fá sér eitthvað gott í svanginn fyrir gönguna miklu - flestir fengu sér pizzu sem bragðaðist mjög vel. Við Inga erum þarna í góðum hóp göngufólks.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.5.2009 | 01:42
Garðbæingar teknir í bakaríið!
Fimmtudagur 30. apríl 2009
Mjög margt var að gerast hjá mér í dag sem hefði verið vert að skrifa um. Ákvað hins vegar að velja handboltaleik sem við Magnús Árni fórum á í kvöld í íþróttahúsinu að Varmá. Þar fór fram annar leikur Aftureldingar og Stjörnunar úr Garðabæ, í umspili um laust sæti í úrvalsdeild karla. Stjarnan hafði unnið fyrsta leikinn og því var að duga eða drepast fyrir okkur Mosfellinga, því með tapi væri Stjarnan í úrvalsdeild en við sætum eftir. Það var gríðarleg stemming á Varmá í kvöld - troðfullt hús af fólki, örugglega yfir 500 manns. Piltarnir í Aftureldingu voru hvattir til dáða. Þeir stóðu sannarlega undir væntingum og tóku Garðbæinga í bakaríið. Lokatölur voru 32-22. Liðin þurfa því að spila þriðja leikinn, hreinan úrslitaleik um hvort liðið verður í úrvalsdeild næsta keppnistímabil.
Mynd dagsins er úr íþróttahúsinu að Varmá í kvöld. Við Magnús Árni mættum frekar seint á leikinn og þurftum að standa aftast í troðfullu íþróttahúsinu. Ég valdi þessa mynd því hún endurspeglar voandi öll lætin, hitan og þrengslin sem voru á leiknum en gerðu þessa upplifun einmitt svo skemmtilega
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.4.2009 | 22:19
Fjör í Meistaradeildinni
Miðvikudagur 29. apríl 2009
Vorið er skemmtilegur tími fyrir okkur knattspyrnuáhugamenn. Ekki bara að spennan fyrir nýju fótboltasumri hér heima sé í hámarki heldur er ekki síður spennandi að fylgjast með lokum helstu mótanna í Evrópu. Nú er farið að líða að lokum á einni skemmilegustu keppninni, Meistaradeild Evrópu. Nú eru fjögur lið eftir í kepninni og þrír leikir; tveir undanúrslitaleikir og sjálfur úrslitaleikurinn. Í kvöld fór fram fyrri leikur Manchester United og Arsenal en liðin eigast svo aftur við í næstu viku þar sem skorið verður úr um hvort liðið kemst í úrslitaleikinn.
Mynd dagsins er af strákunum í 4. flokki Aftureldingar ásamt Bjarka þjálfara sem hér er í forgrunni. Strákarnir komu saman í kvöld í vallarhúsinu að Varmá til að horfa á leikinn og fá sér pizzu. Ég kíkti á fyrri hálfleikinn með strákunum enda var ég að skutla Ágústi Loga í fjörið en hann er einn af strákunum í flokknum. Það var mikil spenna í loftinu enda flestir strákarnir á bandi Manchester sem unnu leikinn 1-0.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.4.2009 | 00:32
Jómfrúarferð á Háskólatorgið
Þriðjudagur 28. apríl 2009
Í morgun kom ég í fyrsta skipti inn á Háskólatorgið, sem er með nýjustu byggingum Háskóla Íslands. Torgið opnaði fyrir rúmu ári og tengir saman gamalgrónar byggingar á Háskólasvæðinu við Norræna húsið. Ég hef ekki átt erindi þarna fyrr en í morgun, en þá fór á eg fyrirlestur í byggingunni Gimli, sem er ný og er hluti af torginu. Um var að ræða fræðslufund á vegum félagsins Stjórnvísis, þar sem Eggert Birgisson ráðgjafi hjá Capacent, fjallaði um ýmis hagnýt atriði varðandi áætlanagerð og hlutverk áætlana í markvissri framkvæmd stefnu. Semsagt, vinnutengdur fundur. Eftir ágætis fyrirlestur skoðaði ég mig aðeins um á Háskólatorginu enda eyddi maður ófáum stundum í lok síðustu aldar á lesstofum og í byggingum Háskólans. Háskólatorgið virkar mjög sniðug bygging sem heppnast hefur vel. Mjög gaman að koma þarna og fékk mann heldur betur til að hugsa til skemmtilegra skóladaga.
Mynd dagsins tók ég á Háskólatorginu og sýnir námsfúsa stúdenta að læra - líklegast fyrir próf Sjálfur hefur maður verið í þessum sporum ansi oft - mjög skemmtilegur tími þó stressið sé stundum yfir meðallagi
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)