Um leyndardóma stoðtækja

Miðvikudagurinn 24. mars 2010

Þar sem ég var nú að fjalla um gömul lækningatæki í færslu gærdagsins er aldeilis gaman að fara í færslu dagsins í dag. Nú í kvöld fór ég á spjallfund með tveimur "tæknimönnum" hjá stoðatækjafyrirtækinu Össuri, þeim Pálmari og Þórði. Þeir félagar voru með magnaða fræðslu um þetta merkilega fyrirtæki og ekki síður var farið yfir þróunina í gerviútlimum (ekki samt eins og mörg ykkar hugsaCool) síðustu árin. T.d. skoðuðum við þróun í hnjám og ökklum. Þarna er ótrúlega merkileg saga á ferð og margt hefur þróast og breyst hratt - sem betur fer fyrir þá sem á þessum hjálpartækum þurfa að halda. Þarna eru margir að öðlast gríðarleg lífsgæði sem flotið hefðu annars framhjá í mörgum tilfellum.

össur

Mynd dagsins er tengd umfjöllun um starfsemi stoðtækjafyrirtækisins Össurar nú í kvöld. Þarna er ég með ökla í fanginu - þetta er víst ekki einu sinni nýjasta týpa og gaman að sjá að mikil framþróun er í þessum fræðum.


Gömul lækningatæki skoðuð

Þriðjudagur 23. mars 2010

Seinni partinn í dag var mér boðið með í skoðunarferð að skoða gömul lækningatæki og ýmsa aðra gamla muni í eigu Landspítala. Þetta var mjög merkileg ferð og margt forvitnilegt að sjá úr heilbrigðissögu Íslendinga s.l. 100 ár eða svo. Sérstök minjanefnd Landspítala er starfandi og reynir hún að passa upp á gamla hluti úr sögu spítalans. Því miður vantar kannski góða aðstöðu til að sýna eitthvað af þessum gripum þó sumir hafi ratað í Lækningaminjasafn og lyfjafræðisafn sem bæði eru út á Seltjarnarnesi. Minjunum er í mörgum tilfellum raðað í belg og biðu vegna plássleysis en það gerir það líka forvitnilegt að grúska aðeins í þessu. Mynd dagsins var tekin í skoðunarferðinni í dag.

IMG_7219

Buslað í blíðunni

Mánudagur 22. mars 2010

Það var mikið fjör á pallinum hjá okkur seinni partinn í dag. Það var rosalega fínt veður og krakkarnir komnir í gírinn fyrir sumarið. Við gáfum því leyfi fyrir smá vatnssulli útifyrir en slíkt brölt er mjög vinsælt hér á heimilinu á sumrin. Það leið heldur ekki á löngu áður en allir voru búnir að skvetta og sprauta hver á annan. Þó sólin hafi skynið skært var samt nokkur loftkuldi þannig að buslið stóð ekki yfir í langan tíma - en mjög skemmtilegt samt og ljúfur vorboði SmileSmile

IMG_7249

Mynd dagsins er tekin á pallinum hjá okkur í dag og sýnir synina Magnús Árna og Ágúst Loga vera að buslast í blíðunni ásamt Elísabetu vinkonu Magnúsar.


Jón Árni fermist

Sunnudagur 21. apríl 2010

Í kvöld fórum við fjölskyldan í fermingarveislu hjá Jóni Árna nágranna okkar og vini Ágústar Loga. Jón Árni og foreldrarnir, Ólína og Halli, bauð upp á glæsilega veislu sem hófst seinni partinn á gómsætu hlaðborði og síðan fylgdu kransakaka og fleira góðgæti í kjölfarið. Alveg hreint ljómandi skemmtileg og velheppnuð fermingarveisla hjá Jóni Árna í dag.

IMG_7193

Mynd dagsins er tekin í fermingarveislu Jóns Árna nú í kvöld. Þarna eru þeir félagar, Ágúst Logi og Jón Árni, við mótorhjól sem fermingardrengurinn fékk í fermingargjöf frá foreldrunum (Jón Árni er sá sem er í vestinu). Með þeim á myndinni er tveir tilvonandi fermingarpiltar, þeir Daníel og Vignir.


Göngutúr í góða veðrinu

Laugardagurinn 20. mars 2010

Í verðurblíðunni í dag ákvað ég að skella mér í góðan göngutúr. Inga var að vinna og strákarnir frekar latir í morgunsárið. Ég dreif mig því af stað og rölti héðan úr Mosfellsbænum yfir í Grafarvog og hélt ferð minni áfram gegnum Grafarvoginn og Bryggjuhverfið yfir í Vogahverfið. Göngutúrinn var vel á þriðja tíma og yfir 20 km en var bara mjög hressilegur og skemmtilegur. Á eftir skelltum við Ágúst Logi okkur í sund og í kvöld áttum við fjölskyldan svo fínt kvöld saman.

IMG_7251

Mynd dagsins er tekin í verðurblíðunni í göngutúrnum mínum í dag. Þessi mynd er tekin inn í Grafarvoginum, við Víkurvegin. Frábær gönguferð í góða veðrinu í dag!


Nýtt hjúkrunarheimili opnar

Föstudagur 19. mars 2010

Í dag var í nógu að snúast í vinnu minni á Hrafnistu því eftir hádegið vorum við að vígja nýtt hjúkurnarheimili sem rekið verður undir nafni Hrafnistu - Hrafnista Kópavogi. Nýja hjúkrunarheimilið er samstarfsverkefni okkar á Hrafnistu, Kópavogsbæjar og Félags- og tryggingamálaráðuneytis. Við vigsluna var glæsileg dagskrá sem um 200 boðsgestir sóttu. Á eftir var svo opið hús fyrir starfsfólk Hrafnistu og opnuninni var fagnað langt fram á kvöld. Það voru mörg handtökin sem þurfti að klára í dag þannig að þessi hátíðisdagur myndi takast sem best. Það gerðist líka, þannig að dagurin í dag var sérstaklega vel heppnaður og ánægjulegur. 

 

bodthing opnun

Mynd dagsins er tekin við vígslu á nýja hjúkrunarheimilinu í dag. Þarna er ég með Guðmundi Hallvarðssyni stjórnaformanni Sjómannadagsráðs (eiganda Hrafnistu), Árna Páli Árnasyni félags- og tryggingamálaráðherra og Gunnsteini Sigurðssyni bæjarstjóra Kópavogs.


Heimsókn í umtöluðustu sundlaug landsins

Fimmtudagur 18. mars 2010

Umtalaðasta sundlaug landsins þessi misserin er án efa sundlaugin á Álftanesi. Í umræðunni um fjárhagsvandræði þessa ágæta sveitafélags hefur oftar en ekki komið upp að nýja sundlaug þeirra Alftnesinga hafi verið mjög þungur baggi. Í dag ákváðum við feðgar að heimsækja þessa margumtöluðu sundlaug. Það var nú ekki margt um manninn en skemmtileg var laugin. Sjálfsagt er þarna ein stærsta rennibraut landsins sem er mjög skemmtileg (ég prófaði nokkrar ferðir). Mesta skrautfjöðurinn er þó öldu-sundlaugin en það er sérstök sundlaug sem hefur að geyma mikinn öldugang sem settur er af stað með reglulegu millibili. Þetta hef ég ekki áður séð á Íslandi en kynnst svona sundlaugum erlendis. Öldusundlaugar eru mjög skemmtilegar og laugin á Álftanesi vel heppnuð að þessu leyti, enda skemmtum við feðgarnir okkur mjög vel. Um pólitísk mál, eins og hvort réttlátt hafi verið að byggja þessa glæsilegu sundlaug í þessu frekar fámenna sveitarfélagi, ætla ég ekki að taka afstöðu - en þetta var fín sundferð hjá okkur!

IMG_7192

Mynd dagsins er af Ágústi Loga og Magnúsi Árna fyrir utan sundlaugina á Álftanesi í dag. Rennibrautin stóra er í baksýn en öldusundlaugin verður nú sjálfsagt það eftirminnilegasta úr þessari finu sundferð okkar feðga.


Tími aðalfunda rennur upp

Miðvikudagur 17. mars 2010

Nú er tími aðalfunda runninn upp. Nánast öll samtök og félög eru með aðalfundi sína í mars eða apríl. Það streyma því að ýmis aðalfundaboð þessa dagana - sem er jú bara gott og blessað. Í kvöld fór ég á einn aðalfund. Það var aðalfundur í knattspyrnudeild Aftureldingar hér í Mosfellsbæ sem haldinn var í Lágafellsskóla. Um 60-80 manns létu sjá sig og flesta er maður farinn að þekkja vel því eins og áður hefur komið fram á þessari síðu hef ég verið töluvert viðloðandi starf deildarinnar síðustu árin. Fundurinn gekk vel og kominn er nýr formaður fyrir deildina sem er ánægjulegt því það stefndi þar í mikil formannsvandræði. Ég steingleymdi að fara með myndavél á aðalfundinn þannig að þessi fína mynd úr ársskýrslunni verður bara að duga sem mynd dagsins í þetta sinn - enda bara mjög flott!!!

fagn

 


Ráðstefna um nýjungar í heilbrigðisþjónustu

Þriðjudagur 16. mars 2010

Í dag sat ég ráðstefnu á vegum samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu (SFH), en ég gegni varaformennsku í þessum ágætu samtökum. Ráðstefnan, sem fór fram á Grand hótel, fjallaði um nýjungar í heilbrigðisþjónustu og var vel sótt. Þar var meðal annars rætt um öldrunarþjónustu, þjónustu við fatlaða og nýjungar hjá heilsustofnun náttúrulækningafélagsins í Hveragerði, án þess að ég fari nánar út í umræðuefnið hér (sjá frekar á heimasíðu SFH, samtok.is). Ráðstefnan heppnaðist mjög vel og við í stjórninni vorum mjög ánægð með daginn.

 

IMG_7172

Mynd dagsins er frá ráðstefnunni um nýjungar í heilbrigðisþjónustu í dag. Þarna er Gísli Páll formaður SFH að setja ráðstefnuna en við háborðið sitja Árni Páll Árnason félags- og tryggingamálaráðherra og Þóra Arnórsdóttir fjölmiðlakona sem var ráðstefnustjóri.


Kransakaka og súkkulaðifiðrildi

Mánudagur 15. mars 2010

Eins og áður hefur komið fram á þessari síðu styttist nú óðfluga í fermingu eldri sonarins á heimilinu, Ágústar Loga. Eins og gerist og gengur er í mörg horn að líta í undirbúningnum. Í kvöld var verið að græja ýmislegt. Til dæmis fór Inga á kransakökunámskeið þar sem hún bakaði kransaköku fyrir veisluna. Eftir að heim var komið var svo farið í ýmislegt föndur. Það skal þó tekið fram að föndur er ekki mín sterkasta hlið en einhver verður að vera til að njóta Cool. Mynd dagsins sýnir súkkulaði-fiðrildi sem Inga galdraði fram og er bara nokkuð glæsilegt hjá henni!

IMG_7168

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband