20.7.2009 | 21:03
Sólin sleikt í Lágafellslaug
Mánudagur 20. júlí 2009
Sumarfrí fjölskyldunnar er byrjað en við Inga erum nú bæði komin í frí. Það er búið að vera alveg ótrúlega heitt í dag. Fyrri hluta dagsins var alveg hreint glampandi sól og við fjölskyldan skelltum okkur í sund þar sem við sleiktum sólina framundir kaffi. Við fórum í Lágafellslaug hér í Mosfellsbænum en þetta er alveg frábær fjölskyldusundlaug sem við sækjum oft, alveg í göngufæri við húsið okkar.
Mynd dagsins er af Ágústi, Magnúsi og Ingu að sleikja sólina í Lágafellslaug í dag
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.7.2009 | 19:07
Ættarganga Tungufellsættarinnar
Sunnudagur 19. júlí 2009
Dagurinn í dag fór að mestu leiti í að koma sér heim úr Þórsmörk eftir Laugavegsgöngu síðustu daga. Hópurinn okkar tók rútu til Reykjavíkur eftir hádegið en áður höfðu flestir gengið á Valahnjúk þar sem gott útsýni er yfir Þórsmerkursvæðið. Þegar við komum til Reykjavíkur brunuðum við Ágúst Logi strax austur að Gullfossi og Geysi en á Hótel Gullfossi var sameignlegur kvöldverður eftir Ættargöngu Tungufellsættarinnar sem við tilheyrum. Síðustu 9 ár hefur sú skapast sú skemmtilega hefð að afkomendur Jóns Árnasonar og Sigríðar Árnadóttur (langafi og langamma mín í móðurætt) hafa hist einn dag á sumri og gengið saman skemmtilega dagleið um slóðir forfeðranna. Á eftir hefur svo verið sameignleg kvöldverðarveisla. Jón og Sigríður hófu búskap í Tungufelli í Hrunamannahreppi í byrjun síðustu aldar og áttu 11 börn, 10 þeirra komust til fullorðinsára. Ennþá eru ábúendur í Tungufelli í ættinni. Í dag var sem sagt ættargangan þetta árið. Inga og Magnús Árni fóru í gönguna en við Ágúst náðum í kvöldverðinn á eftir.
Mynd dagsins er úr kvöldverðarveislunni á Hótel Gullfossi eftir ættargöngu Tungufellsættarinnar í dag. Tæplega 50 manns voru í kvöldverðinum en ekki allir voru með í göngunni. Myndin sýnir okkar fjölskyldu og réttsælis við borðið sitja Ágúst Logi, Mamma, Inga, Magnús Árni, Sigga (móðursystir), Steen (eiginmaður Siggu) og pabbi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.7.2009 | 15:52
Laugavegur 4: Emstrur - Þórsmörk
Laugardagur 18. júlí 2009
Að vanda lögðu Laugavegsfarar af stað kl. 10 en í dag var síðasti áfangi leiðarinnar á dagskrá, um 15 km ganga inn í Langadal í Þórsmörk. Um hádegibilið gerði á okkur smá skúri en að öðru leiti var veðrið fínt í dag. Það sem gerði þó göngu dagsins óvenjulega var að í dag fór fram Laugavegshlaupið en um 350 hlauparar hlupu þá Laugaveginn í einni bunu. Tæplega kl. 13 geystist fyrsti hlauparinn framhjá okkur en rúmlega 30 mín síðar kom sá næsti og síðan komu þeir hver á fætur öðrum. Hlaupið setti skemmtilegan svip á daginn og við reyndum að hvetja hlauparana sem mest. Rétt áður en komið er að Þórsmörk þarf að fara yfir bratta hæð sem heitir Kápa en margir hlauparana kalla hana "geðveikina". Þá eru aðeins 5 km eftir að hinum 55 km langa Laugavegi. Margir eru þá orðnir mjög þreyttir og að fara upp og niður þessa bröttu hæð tekur vel í. Það sem vakti nú mesta undrun okkar var, að þegar við komum upp á "Kápuna" var búið að lenda þar flugvél. Við nutum svo góðs af hlaupinu við að vaða yfir Þröngá þar sem búið var að strengja band yfir ánna til að hjálpa hlaupurunum en yfir þessa kraftmiklu jökulá þarf að fara yfir með mikill varúð. Þegar við komum inn í Þórsmörk var komin rjómablíða. Flestir smelltu sér í sturtu og hrein föt áður en skellt var upp heljarinnar grillveislu til að fagna farsælum leiðarlokum ferðar okkar. Auðvitað var extra-löng kvöldvaka með leikjum og miklum söng en Ingimar var að sjálfsögðu með nikkuna uppivið öll kvöldin svo göngugarpar gætu sungið í sig kraft.
Mynd dagsins er að Skagfjörðsskála í Langadal í Þórsmörk þar sem ferð okkar endaði. Alltaf jafn ótrúlega fallegt í Þórsmörk, sérstaklega í góðu veðri
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.7.2009 | 15:36
Laugavegur 3: Álftavatn - Emstrur
Föstudagur 17. júlí 2009
Í dag hófu göngugarpar leikinn um kl. 10 er farið var úr Álftavatni yfir í Emstur en skálinn þar heitir reyndar Botnar. Í dag er gönguleiðin um 16 km en mestur hluti leiðarinnar liggur um flata en gróðurlitla sanda. Fyrri hluta leiðarinnar þarf að vaða tvær ár, Bratthálskvísl og Bláfjallakvísl en þær eru þó hvorugar mjög stórar. Bláfjallkvísl er þó mun stærri og er fræg fyrir að vera alltaf alveg ísköld. Hún stóð alveg undir þeim væntingum í dag. Eftir að hafa tekið góða kaffipásu í Hvanngili, sem er skáli eftir 4-5 km frá Álftavatni, tók að þykkna í lofti og síðustu tvær klukkustundir dagsins fengu regnföt göngugarpa að spreyta sig í fyrsta skipti í ferðinni þegar við fengum á okkur netta skúri. Við vorum komin kl. rúmlega fjögur í skálann í Emstrum og um kvöldið fóru allir flestir í mislanga göngutúra að Markarfljótsgljúfrum sem eru rétt við Emstruskálan - í fínu veðri. Kvöldvakan í kvöld var höfð í styttra lagi enda erfiður lokadagur framundan.
Mynd dagins er af Ágústi Loga að vaða yfir ánna Bratthálskvísl. Ágúst var í sérstökum vaðsokkum úr svipuðu efni og blautbúningar, þannig að það var ekki mikið mál fyrir hann að skoppa yfir árnar í dag
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.7.2009 | 15:16
Laugarvegur 2: Hrafntinnusker - Álftavatn
Fimmtudagur 16. júlí 2009
Í dag hélt Laugavegsgangan áfram. Við lögðum í hann frá Höskuldsskála í Hraftinnuskeri áleiðis að Álftavatni um kl. 10. Þessi dagleið er um 12 km en þrátt fyrir að fyrri hluti dags sé nokkuð mikið upp og niður er heildarlækkun á gönguleið dagsins 450-500 m. Á miðri leið brá hluti hópsins sér upp á topp á fjallinu Háskerðingi sem er eitt hæsta fjallið á svæðinu milli skálanna tveggja. Þetta er um 2 klst krókur á leiðinni. Uppi á Háskerðingi er geggjað útsýni til allra átta enda var léttskýjað í dag. Við vorum svo komin í skálann við Álftavatn upp úr kl. 16. Um kvöldið fóru flestir í kvöldgöngu. Annað hvort í styttri ferðina yfir í helli við Álftaskarð eða í lengri ferð upp og niður eftir Bratthálsi sem er við Álftavatnið. Um kvöldið var svo slegið upp dúndur kvöldvöku sem stóð þó ekki of lengi fram á nótt
Mynd dagins er tekin fyrri hluta dags þegar gengið er af stað frá skálanum í Hrafntinnuskeri áleiðis upp á Jökultungur. Á myndinni má sjá fjallið Háskerðing (hæsta fjallið á myndinni) en utan um það liggur Kaldaklofsjökull. Minni fjöllin á myndinni eru kölluð Kaldaklofsfjöll.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.7.2009 | 15:01
Laugavegur 1: Landmannalaugar - Hrafntinnusker
Miðvikudagur 15. júlí 2009
Í dag var ég mættur um kl 8 í Mörkina, við höfuðstöðvar Ferðarfélags Íslands. Þar er að fara vaskur hópur á vegum Ferðafélagsins í Laugavegsgöngu, sem tekin verður á fjórum dögum. Ég er fararstjóri í ferðinni ásamt Ingimar tengdapabba. Hópurinn fór með rútu frá Mörkinni og vorum komin í Landmannalaugar um kl. 12. Þá var gefinn frjáls tími sem sumir nýttu m.a. til að baða sig og fleira. Kl. 13:30 hófst svo gangan í Hrafntinnusker í ágætis veðri. Þessi dagleið er 10-12 km og er upphækkun alls tæpir 500 m. Á leiðinni brugðum við okkur upp á fjallið Brennisteinsöldu þar sem mjög gott útsýni var yfir svæðið. Við vorum komin um kl. 18 í Hrafntinnusker og um kvöldið gat fólk valið um stuttan göngutúr upp á fjallið Söðul eða lengri ferð að jaðri íshella hinum megin í Hrafntinnuskerinu. Mjög fínn dagur.
Mynd dagsins er af gönguhóp Ferðarfélagsins við Landmannalaugar áður en lagt var af stað. Í hópnum eru 20 manns auk fararstjóranna mín og Ingimars og aðstoðarfararstjórans, Ágústar Loga.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.7.2009 | 00:31
Laugavegsganga undirbúin
Þriðjudagur 14. júlí 2009
Í kvöld stendur yfir undirbúningur fyrir göngu um "Laugaveginn" sem ég er að fara í á morgun. Um er að ræða alls 5 daga ferð með Ferðafélagi Íslands þar sem ég verð fararstjóri ásamt Ingimar tengdapabba. Löngu er uppselt í ferðina en alls eru 20 pláss í boði. Ferðin er eignilega Delux útgáfa. Við göngum í fjóra daga, 4-6 tíma á dag og á kvöldin eru svo í boði valferðir fyrir ferðalangana; bæði löng og stutt ferð. Farangurinn verður fluttur á milli skála fyrir fólk en gististaðir eru hefðbundnir; Hrafntinnusker, Álftavatn, Emstrur og Þórsmörk. Á laugardaginn munum við koma inn í Þórsmörk og þá verður skellt upp grillveislu. Harmonikkan verður með í för og á kvöldin verða kvöldvökur með söng og glensi veðurspáin þokkaleg og annað eins og best verður kosið!
Mynd dagsins var tekin nú í kvöld og sýnir Ingimar tengdapabba og Ágústi Loga við undirbúning fyrir ferðina. Þeir eru að brjóta saman söngtextana sem eru nauðsynlegir í svona ferð og í baksýn grillir í bakpoka og fleira dót sem verið er að pakka.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.7.2009 | 00:20
Síðasta vikan í leikskólanum!
Mánudagur 13. júlí 2009
Í dag er stór dagur hjá Magnús Árna því þetta er síðasta vikan sem hann er í leiksskólanum. Á fimmtudaginn fer hann í sumarfrí og kemur ekki aftur í leiksskólann því í ágúst byrjar kappinn í 6 ára bekk!!! Aldeilis spennandi tími að vera orðinn svona stór. Magnús hefur í vetur verið í 5 ára deildinni í Lágafellsskóla en það er ágætis undirbúningur fyrir alvöru skólann.
Í tilefni af þessum merku tímamótum smellti ég nokkrum myndum af kappanum í morgun í leiksskólanum. Það eru reyndar mjög fá börn orðin eftir, flestir eru komnir í sumarfrí. Mynd dagsins er af Magnús Árna á síðustu dögum leiksskólans. Hér er hann að gangi inn í leiksskólann í eitt síðasta skiptið sem lítið leikskólabarn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.7.2009 | 00:05
Bragðgóður hákarl í Bjarnarhöfn
Sunnudagur 12. júlí 2009
Í dag vöknuðum við fjölskyldan í hrauninu við Snæfellsjökul í blíðskaparveðri en við fórum við gær í stutta ferð á Snæfellsnes (sjá færslu gærdagsins). Eftir að hafa dundað okkur fram undir hádegi skoðuðum við Lóndranga og Þúfubjarg. Svo var farið að dóla af stað í átt að höfuðborginni en á leiðinni var ákveðið að stoppa í Bjarnahöfn sem er án efa frægasti hákarlaverkunarstaður landsins. Það er mjög gaman að koma í Bjarnarhöfn en staðurinn hefur veriði mikill hákarlaveiði og -verkunarstaður gegnum aldirnar. Þar er í dag skemmtilegt safn um hákarlaútgerðina og lífið á bænum og fengum við fjölskyldan góða fræðslu frá heimafólki um þessi mál. Rúsínan í pylsuendanum er svo að fá að skoða hákarlaverkunina en í dag er mikið magn af hákarli verkað þarna. Auðvitað verða svo allir að fá að smakka - og hákarlinn þarna er ótrúlega bragðgóður!
Mynd dagsins er af mér að bragða á "uppskerunni" í hákarlaverkunarstöðinni Bjarnarhöfn. Alveg hreint gríðarlega gómsætur hákarl
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.7.2009 | 22:41
Skarðsvík - líklegasta flottasta baðströnd landsins
Laugardagur 11. júlí 2009
Skarðsvík, yst á Snæfellsnesi, er einn af uppáhaldsstöðum fjölskyldunnar. Þarna er að finna gullna og hreina sandströnd án steina og sjávargróðurs, inn á milli dökkra og glæsilegra kletta. Í blíðunni í dag ákváðum við fjölskyldan að skella okkur þangað. Skarðsvík er eitt af best geymdu leyndarmálum Snæfellsness. Tiltölulega fáir vita af þessari glæsilegu baðströnd sem á góðum degi myndi sóma sér mjög vel á Spáni eða í Portúgal. Helst er að heimamenn sæki Skarðsvík og það var einnig svo í dag. Töluvert var af fólki á ströndinni en nóg pláss og engar hrúgur af fólki eins og gerist studum á sólarströndum. Við undum okkur vel við leik í sandinum og busl og sundtök, og meira að segja húsfreyjan sjálf stóðst ekki mátið og skellti sér í sjóinn til kælingar. Eftir sólbaðið fórum við á Djúpalónssand sem skartaði sínu fegursta og gengum yfir í Dritvík. Í dag er Djúpalónssandur sennilega að verða frægastur fyrir aflraunasteinana fjóra sem þar er að finna í fjörunni en þeir voru notaðir á árum áður til að meta hvort menn væru skipstækir til róðra eður ei. Til að fá skipspláss þurfti að geta lyft Hálfdættingi upp á sérstaka sillu. Steinarnir heita Amlóði (ca 25 kg), Hálfdrættingur (ca 50 kg), Hálfsterkur (um 100 kg) og Fullsterkur (155 kg). Fjölskyldan var nokkuð stolt þegar fjölskyldufaðirinn hóf Hálfsterkan á loft en aðalvandmálið við steinatökin er að ná góðu taki. Við fundum okkur svo góðan náttstað í nágrenninu þar sem var grillað og spilað fram á nótt.
Mynd dagsins er tekin í Skarðsvík, yst á Snæfellsnesi. Þarna áttum við fjöskyldan frábæran dag en í góðu veðri er þetta flottasta baðströnd landsins. Hár klettur skagar út í víkina. Það er mjög vinsælt að hlaupa fyrir klettinn og reyna að sleppa við að öldurnar nái manni. Inga tók þessa mynd af okkur feðgum að leika þann leik
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)