Ljúffengt "lasanja"

Laugardagur 13. mars 2010

Við fjölskyldan áttum rólegan dag í dag. Um kaffileitið fór þó Inga að vinna þar sem hún var á kvöldvakt í kvöld. Við feðgarnir þurftum þó ekki örvænta að deyja úr hugri þar sem okkur hafði verið boðið í mat til Ívars og Elínar, vinafólks okkar sem búa í Hafnarfirði. Þar vorum við líka mættir (ekki alveg stundvíslega) kl. 19. Þar voru í heimsókn hluti Áshólssystra (sjá færslu gærdagsins). Eftir matinn settist ég niður með Ívar og Siggu en við ætluðum nú líka að nota tækifærið og skipuleggja gönguferð á Strandirnar sem farið verður í næsta sumar. Það gekk mjög vel og ferðatilhögun er nánast klár - nú er bara lokaskipulagning eftir. Mjög ánægjulegt kvöld!

IMG_7167

Mynd dagins er tekin í Hafnarfirðinum nú í kvöld. Þarna erum við að snæða ljúffengt "lasanja" sem Elín og Ívar töfruðu fram. Sonunum þótti þetta ansi gott og þeir hökkuðu kvöldverðinn í sig eins og þeir hefðu ekki fengið að borða í marga dagaCool. Á myndinni eru frá vinstri: Magnús Árni, Ágúst Logi, Sigga, Jóhann, Elín, Ívar, Margrét, Rakel og Anna Bára. 


Fjör á föstudegi

Föstudagurinn 12. mars 2010

Það var fjölmenni hjá okkur í Hrafnshöfðanum í kvöld en þá komu þrjár systur í mat ásamt fylgifiskum. Þetta voru þrjár af Áshólssystrunum: Sigga, Anna Bára og Berglind. Með þeim í för voru Guðbjörg dóttir Önnu og annari af tvíburadætrum Berglindar. Allar voru þær í kaupstaðarferð í höfuðborginni þó hver með sitt erindi. Það var því mjög gaman að fá þær í heimsókn í kvöld.  

IMG_7165

Mynd dagsins dagsins er tekin við kvöldverðarborðið í kvöld hér í Hrafnshöfðanum. Frá vinstri: Sigga, Ágúst Logi, Inga, Magnús Árni, Berglind, Guðbjörg og Anna Bára. Mjög skemmtilegt kvöld!


Harpa og svínaflensa

Fimmtudagurinn 11. mars 2010

Í dag var mér boðið að skoða tónlistarhúsið Hörpu sem er í byggingu við Reykjavíkurhöfn. Harpa verður hvorki meira né minna en 28.000 m2 að stærð. Þó margir segi að húsið eigi að vera verðugt minnismerki um "góðærið" sem hér ríkti á síðustu árum er húsið þó að mörgu leiti mjög athyglisvert. Hönnunin er sögð undir áhrifum frá náttúru Íslands. Meginhugmyndin með byggingunni er að skapa kristallað form með fjölbreyttum litum sem sóttir eru í nærliggjandi náttúru og gefur þeim er þess nýtur síbreytileg tilfinningaleg áhrif. Listamaður Olafur Eliasson hannaði svo glerhjúpinn sem umlykur húsið. Í húsinu eru svo þrír meginsalir sem liggja hlið við hlið; tónleikasalur, æfingasalur og ráðstefnusalur. Ennfremur verður 200 manna tónleikasalur á neðri hæð. Í dag var verið að kynna húsið sem framtíðar ráðstefnuhús. Við hönnun hússins var lögð áhersla á sveigjanleika þannig að húsið geti nýst allt til stærri viðburða eða að hægt verði að skilja ráðstefnurýmin algerlega frá öðrum rýmum þannig að mismunandi starfsemi fari fram á sama tíma í húsinu, án innbyrðis truflunar. Að auki verða fjölmargir minni salir sem munu nýtast til funda-og ráðstefnuhalds. Byggingin er reyndar ennþá mjög "hrá" en spenndi verður að fylgjast með þessu húsi í framtíðinni. Í kvöld fór ég svo á fræðslufund hjá Lyfjafræðingafélaginu sem haldin var á veitingastaðnum Silfur við Austurvöll. Þar voru um 70 lyfjafræðingar mættir til að ræða Svínaflensu - hvernig gengu aðgerðir og hvað gerðist næst. Einhverra hluta vegna var mér treyst fyrir fundarstjórninni Smile en engu að síður varð þetta bara hinn fróðlegasti og skemmtilegasti fundur sem stóð yfir í tvær klukkustundir.

Tónlistarhúsið við Austurhöfn

 

Mynd dagsins er af tónlistarhúsinu Hörpu við Reykjarvíkurhöfn, eins og það kemur til með að líta út. Í dag fékk ég að skoða húsið sem var mjög forvitnilegt og bara gaman.


Stemming hjá Stefni

Miðvikudagurinn 10. mars 2010

Í kvöld fórum við Inga á afmælistónleika hjá karlakórnum Stefni. Karlakórin Stefnir er úr Mosfellsbæ og fagnar um þessar mundir 70 ára afmæli sínu. Í tilefni þessa stórafmælis er kórinn að halda þrenna tónleika og í kvöld voru þeir fyrstu. Kórinn tók valin lög sem hafa verið á dagskrá tónleika kórsins á ýmsum tímum í þeirra 70 ára sögu. Auk þess voru svo í lokin fruflutt tvö lög sem samin voru af tónskáldinu Hildigunni Rúnarsdóttur, sérstaklega fyrir Stefni í tilefni af afmælinu. Ljóðin voru eftir Jón Helgason. Einsöng með kórnum sungu Kristinn Sigmundsson og Þórunn Lárusdóttir. Tónleikarnir voru haldnir í Guðríðarkirkju í Grafarholtinu. Þangað hef ég ekki komið áður. Þetta er nokkuð sérstök en sjarmerandi kirkja og mjög gott tónleikahús. Sérstaklega er altaristaflan óvenjuleg - þar er sjón sögu ríkari, sérstaklega í dimmu. Fínir tónleikar hjá Stefni í kvöld.

IMG_7162

Mynd dagsins er tekin á afmælistónleikum karlakórsins Stefnis í kvöld - mjög gaman!


Amma kveður

Þriðjudagur 9. mars 2010

Þó þessi síða eigi að fjalla um einn jákvæðan atburð í lífi mínu á hverjum degi, verður þessi dagur etv. einhvers konar undantekning. Dagurinn í dag snérist að mestu leyti um útför ömmu, Guðnýjar Marenar Oddsdóttur. hún var jörðuð í dag. Amma hefði orðið 101 árs næsta sumar. Hár aldur og til að vera jákvæður þá held ég að hún hafi alveg verið sátt að kveðja. Mynd dagsins er af okkur fjölskyldunni með ömmu. Þessi mynd var tekin s.l. sumar þegar haldið var upp á 100 ára afmæli ömmu.

 

100 ar

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband