7 ára afmælisveisla

Mánudagur 25. janúar 2010

Í dag er Magnús Árni, yngri sonur minn, 7 ára. Samkvæmt fjölskylduhefð var hann vakinn í morgunsárið með logandi afmælisköku, söng og pökkum. Hann var hinn ánægðasti með byrjun afmælisdagins og eftir að í skólann var komið var sunginn fyrir hann afmælissöngurinn. Kl 17 hófst svo afmælisveislan þar sem bekkjarbræður Magnúsar úr skólanum mættu. Þar var mikið fjör; borðaðar pizzur, farið í leiki og playstation og auðvitað borðuð afmæliskaka sem var græn fótboltakaka. Afmælið tókst rosalega vel og var bara nokkuð fjörugt eins og við var að búast. Mestu máli skiptir þó að Magnús sofnaði sæll og glaður eftir skemmtilegan afmælisdag.

 

IMG_3729[1]

Mynd dagsins er tekin í afmælisveislu Magnúsar Árna seinni partinn í dag og eins og sjá má var mikið fjör!


Fjölskyldan fagnar afmæli Magnúsar Árna

Sunnudagur 24. janúar 2010

Eins og fram kemur í færslu 21. janúar á yngri sonurinn á heimilinu, Magnús Árni, 7 ára afmæli á morgun. Þá verður heilmikil afmælisveisla fyrir bekkjarfélagana. Í dag hins vegar, héldum við fjölskyldan upp á afmæli kappans með því að fara öll saman í bíó. Magnús valdi auðvitað myndina og fyrir valinu stórmyndin Alvin og íkornarnir númer tvö. Þetta er skemmtileg fjölskyldumynd um íkornan Alvin og bræður hans tvo. Þessir íkornar eru séstakir að því leiti að þeir kunna að tala - og gott betur en það því þeir eru rokkstjórnur því þeir geta líka sungið og dansað. Hetjurnar lentu í ýmsum ævintýrum í myndinni og var Magnús hinn ánægðasti með bíóferðina. Á eftir fórum við fjölskyldan út að borða. Magnús Árni fékk auðvitað að velja stað og hann valdi að fara á American Style í Skipholtinu. Alveg hinN fínasti "for-afmælisdagur".

IMG_6812[1]

Mynd dagsins er tekin nú í kvöld þegar við fjölskyldan fórum út að borða. Þeir bræður fengu  sér hamborgara, samloku og franskar og voru hinir ánægðustu!


Magnað Þorrablót Aftureldingar!

Laugardagur 23. janúar 2010

Í kvöld vorum við Inga aldeilis í góðum félagsskap þar sem við vorum á risa-Þorrablóti Aftureldingar hér í Mosfellsbænum. Risa-þorrablótið var nú haldið í þriðja sinn í núverandi formi en það er haldið til styrktar barna- og unglingastarfi í knattspyrnu- og handknattleiksdeildum Aftureldingar. Auddi og Sveppi voru veislustjórar og hljómsveitin Ingó og verðurguðirnir spiluðu fyrir dans. Yfir 500 manns voru í mat og um 1.000 þátttakendur. Við Inga sátum á borði með Ólínu og Halla, Jóhönnu og Elvar og fleira góðu fólki. Þarna hittum við líka mjög mikið af Mosfellingum sem við þekkjum. Blótið í ár heppnaðist gríðarlega vel og við Inga tjúttuðum til rúmlega þrjú þegar við fórum heim. Þá var húsið ennþá fullt af fólki og hljómsveitin í góðum gír. Gríðarlega skemmtilegt kvöld SmileSmileSmile

þorrablot

Mynd dagsins er tekin á símann minn á Þorrablóti Aftureldingar nú í kvöld (steingleymdi myndavélinni auðvitað). Þarna situm við Inga að snæðingi og myndin nær nú vonandi að skila hinni mögnuðu stemmingu sem ríkti þarna í kvöld.


Hilton heimsótt á Bóndadaginn!

Föstudagur 22. janúar 2010

Í dag er Bóndadagurinn, upphafsdagur Þorra, sem er mánuður sem er í miklu uppáhaldi hjá mér. Kl. 18 var ég mættur á árlegt þorrablót Hrafnistu í Reykjavík, vinnustaðar míns. Þar var mikið um dýrðir og karlakórinn Fjallabræður var án efa hápunktur kvöldsins. Maturinn var auðvitað frábær líka þó ég hafi að þessu sinni bara rétt bragðað að kræsingunum. Ég stakk svo af rétt fyrir kl. 20 til að hitta hana Ingu mína. Í tilefni 20 ára afmælis okkar (sjá færslu 19. janúar) og bóndadagsins ákváðum við að gera okkur dagamun og gista eina nótt á hótel Nordica Hilton. Það var nú aldeilis gaman. Við fengum okkur að borða á veitingastaðnum VOX á jarðhæðinni og áttum skemmtilegt kvöld Cool

 

IMG_6810[1]

Mynd dagsins er tekin á veitingastaðnum Vox á hótel Nordica Hilton nú í kvöld. Þar héldum við Inga upp á bóndadaginnn og að 20 ár voru í vikunni síðan að við kynntumst!


Andrés valinn á boðskortið

Fimmtudagur 21. janúar 2010

Í dag vorum við Magnús Árni að undirbúa 7 ára afmæli kappans sem verður næsta mánudag. Við bjuggum til boðskort en öllum strákunum í bekknum hans verður þá boðið til stórafmælisveislu. Magnús Árni valdi að hafa nokkrar myndir af Andrési önd á boðskortunum. Eftir að við höfðum prentað þau út skrifaði Magnús nöfn á hverjum og einum gesti á kortin og svo þurfti að fara með þau til piltana sem Magnús hafði mjög gaman af. Nú er bara að telja niður dagana (a.m.k. er Magnús Árni löngu byrjaður að gera það)!

 

IMG_6882[1]

Mynd dagsins er af boðkorti fyrir 7 ára afmælisboð Magnúsar Árna sem verður á mánudaginn en við feðgar vorum að græja það saman í dag.


Horft á handboltaveislu

Miðvikudagur 20. janúar 2010

Nú er enn eitt handboltamótið hafið þar sem íslenska landsliðið eða "strákarnir okkar" taka þátt. Ég hef alltaf haft ágætis áhuga á handbolta en þó finnst mér allt önnur íþrótt og skemmtilegri vera í gangi þegar bestu landslið heims koma saman. Evrópumótið í Vín er semsagt að hefjast og ætlunin er að reyna að sjá alla leiki íslenska liðsins. Er búinn að færa samviskusamlega inn í dagbókina hvenær leikir íslenska liðsins eru þannig að maður sé ekki að asnast til að bóka fund ofan í miðjan leik eða gera annars konar skipulagsvitleysu. Það er sannkölluð handboltaveisla framundan!  

IMG_6804[1]

Mynd dagsins er af Magnúsi Árna og sjónvarpinu þar sem auðvitað er verið að sýna handboltaleik. Það er ljóst að maður á eftir að vera límdur við skjáinn næstu daga enda mjög spennandi Evrópumót framundan hjá íslenska landsliðinu! 


20 ár maður minn!

Þriðjudagur 19. janúar 2010

Stórmerkilegur dagur í dag í fjölskyldusögunni! Í dag eru nefnilegast 2o ár síðan við Inga kynntumst. Púff, þetta er svakalega há tala þegar maður sér hana svona á blaði fyrir framan sig. Við vorum bæði í námi í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi og kynntumst þar, nánar tiltekið út í sjoppu eftir skólaball. Fljótlega vorum við farin að draga okkur saman og erum því búin að eyða meira en hálfri ævinni saman. Það hefur auðvitið mjög margt skemmtilegt gerst á þessum 20 árum en tíminn er búinn að líða alveg fáránlega hratt InLoveHeartInLove 

20 ár

Mynd dagsins er tekin snemma árs fyrir 20 árum eða árið 1990. Þarna erum við Inga semsagt á sokkabandsárunum, örlítið yngri en við erum í dag en við kynntumst fyrst 19. janúar árið 1990 og höfum alltaf haldið upp á þennan merka dag á hverju ári Tounge 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband